Opið hús í Þjóðskjalasafni Íslands á norrænum skjaladegi 10. nóvember frá kl 12:00 til 16:00. Dagskráin fer fram í skrifstofubyggingu safnsins að Laugavegi 162, 3. hæð, gengið inn um portið. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Dagskrá
| Kl. 12:00 – 16:00 | Sýning á margvíslegum skjölum og munum frá skátahreyfingunni. Meðal skjala eru gamlar ljósmyndir og kvikmyndir, svo sem kvikmynd frá landsmóti skáta 1962. Sýning kvikmynda hefst kl. 12:15. |
| Kl. 13:00 | Eiríkur G. Guðmundsson settur þjóðskjalavörður: Opnun dagskrár og skjaladagsvefjar. |
| Kl. 13:05 | Ólafur Ásgeirsson, fyrrverandi skátahöfðingi og þjóðskjalavörður: Upphaf skátastarfs á Íslandi. |
| Kl. 13:20 | Björn Jón Bragson sagnfræðingur og fyrrverandi deildarforingi: Loftvarnarsveitir skáta í Reykjavík í seinni heimsstyrjöld. |
| Kl. 13:40 | Formleg afhending á skjölum skátahreyfingarinnar til Þjóðskjalasafns. |
| Kl. 13:50 | Kaffihlé. |
| Kl. 14:15 | Anna Kristjánsdóttir prófessor emerita, fyrrverandi framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta: Samstarf kvenskáta og drengjaskáta á Íslandi frá upphafi vega. |
| Kl. 14:35 | Hulda Rós Helgadóttir skátaforingi: Reynsla mín af skátastarfi. |
| Kl. 14:50 | Ólafur Proppé fyrrverandi rektor, formaður fræðsluráðs Bandalags íslenskra skáta: Uppeldisgildi skátahreyfingarinnar. |
| Kl. 15:15 | Kvikmyndir sýndar. |